- Auglýsing -
- Auglýsing -

Magnús Karl tekur við af Maksím hjá Gróttu

Hulda Björk Halldórsdóttir, Magnús Karl Magnússon og Arndís María Erlingsdóttir. Hulda Björk og Arndís María eru í barna- og unglingaráði handknattleiksdeildar Gróttu. Mynd/Grótta
- Auglýsing -

Magnús Karl Magnússon hefur verið ráðinn yfirþjálfari handknattleiksdeildar Gróttu til næstu tveggja ára. Hann tekur við því öfluga starfi sem Maksim Akbachev hefur sinnt undanfarin ár við að leiða uppbyggingu handboltans í Gróttu í samvinnu við stjórn, verkefnastjóra og þjálfara deildarinnar, eins og segir í tilkynningu frá Gróttu.

Maksim var í vor ráðinn til starfa við uppbyggingu handknattleiks í Barein, eins og handbolti.is sagði frá.

Magnús Karl er uppalinn Eyjamaður og spilaði handbolta með ÍBV. Hann hefur sinnt handknattleiksþjálfun hjá yngri flokkum ÍBV og Vals sem og styrktarþjálfun.

Magnús Karl er íþróttafræðingur að mennt og með MSc. í íþróttasálfræði. Þá heldur hann úti heimasíðunni andlegurstyrkur.is og hjálpar íþróttafólki að vinna að markmiðum sínum.

„Það er mikil tilhlökkun hjá stjórn Barna-og unglingaráðs Gróttu fyrir komandi tímabilum með Magnús Karl við stjórnina enda á ferðinni metnaðarfullur og kraftmikill þjálfari,“ segir ennfremur í tilkynningu handknattleiksdeildar Gróttu í gær.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -