Beint: One Veszprém HC – SC Magdeburg, kl. 14.15

Hér fyrir neðan er hlekkur á streymi frá viðureign One Veszprém og Evrópumeistara SC Magdeburg í undanúrslitum heimsmeistaramóts félagsliða í handknattleik karla. Leikurinn fer fram í Kaíró og hefst klukkan 14.15. Bjarki Már Elísson leikur með One Veszprém. Elvar Örn Jónsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon leika með SC Magdeburg.