- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Myndasyrpa: Beið næstu sóknar í lótusstellingu

Landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson er kattliðugur enda er það nauðsynlegt fyrir mann í hans stöðu. Björgvin Páll vakti mikla athygli í keppnishöllinni í Bregenz á miðvikudagskvöld þegar hann hvað eftir annað settist í lótusstellingar meðan hann beið þess að...

Sú markahæsta skrifar undir nýjan samning

Auður Brynja Sölvadóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleikslið Víkings. Auður Brynja fór á kostum með Víkingi í Grill66-deildinni á nýliðinni leiktíð og varð m.a. næst markahæsti leikmaður deildarinnar og þar af leiðandi markahæsti leikmaður Víkingsliðsins...

Erum mjög sátt við okkar leik og frammistöðuna

„Sveiflur hafa verið í leik okkar á tímabilinu. Á stundum höfum við leikið frábærlega vel og meðal annars unnið öll lið deildarinnar en að sama skapi höfum við orðið fyrir fleiri meiðslum en í fyrra sem ef til vill...
- Auglýsing -

Markadrottningin semur við Önnereds til þriggja ára

Markadrottning Olísdeildar kvenna, Jóhanna Margrét Sigurðardóttir leikmaður HK og landsliðskona í handknattleik, hefur skrifað undir þriggja ára samning við sænska úrvalsdeildarliði Önnereds í Gautaborg. Félagið tilkynnti þetta í morgun. Önnereds hafnaði í sjöunda sæti í sænsku úrvalsdeildinni sem lauk í...

Myndasyrpa: Íslendingar á pöllunum í Bregenz

Nokkrir Íslendingar voru í áhorfendastúkunni í keppnishöllinni í Bregenz á miðvikudagskvöld þegar íslenska landsliðið mætti austurríska landsliðinu í fyrri viðureigninni í umspili um sæti á HM á næsta ári. Létu Íslendingarnir vel í sér heyra og létu ekki Austurríkismenn...

Molakaffi: Svan, Sara Sif, Gaugisch, Groener, Jakob, Farelo, Gordo, Zein

Lasse Svan Hansen lék sinn síðasta leik fyrir danska landsliðið í gær þegar Danir unnu stórsigur á Pólverjum í vináttulandsleik, 30:20, í Royal Arena í Kaupmannahöfn. Svan lék sinn fyrsta landsleik fyrir 19 árum og alls urðu landsleikirnir...
- Auglýsing -

Er fimm mörkum á eftir Hönnu Guðrúnu

Lovísa Thompson, leikmaður Vals, hefur farið á kostum í undanförnum leikjum. Síðast í dag héldu henni engin bönd þegar Valur vann KA/Þór, 29:23, í síðustu umferð Olísdeildarinnar. Lovísa skoraði 17 mörk. Ekki er langt síðan hún skoraði 15 mörk...

Úrslitakeppni Olísdeildar: Hvaða lið mætast og hvenær?

Úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik hefst fimmtudaginn 28. apríl. Í fyrstu umferð mætast liðin sem höfnuðu í þriðja, fjórða, fimmta og sjötta sæti deildarkeppninnar sem lauk í kvöld. Efstu tvö liðin, deildarmeistarar Fram og Valur, sitja yfir en mæta...

Erlingur og Hollendingar í góðri stöðu

Hollenska landsliðið í handknattleik karla, undir stjórn Eyjamannsins Erlings Richardssonar, stendur vel að vígi eftir frábæran þriggja marka sigur á portúgalska landsliðinu, 33:30, í fyrri viðureign liðanna í umspili um HM sæti í kvöld. Leikurinn fór fram í Portimao...
- Auglýsing -

Valur í öðru sæti – Rut fékk rautt – sýning hjá Lovísu – Zecevic í ham – úrslit og markaskor, lokastaðan

Valur tyggði sér annað sæti Olísdeildar kvenna í handknattleik síðdegis með öruggum sigri á KA/Þór í Origohöllinni þegar lokaumferðin fór fram, 29:23. Valsliðið situr þar með yfir eins og deildarmeistarar Fram í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Stjarnan kjöldró Hauka í...

Leikjavakt: Uppgjör í lokaumferðinni

Klukkan 16 hefjast þrír síðustu leikir í 21. og síðustu umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik. Valur - KA/Þór.Stjarnan - Haukar.Afturelding - HK. Staðan í Olísdeild kvenna. Viðureign Vals og KA/Þórs er uppgjör um annað sæti deildarinnar. Stjarnan getur náð fimmta sæti...

Skelltu deildarmeisturum í lokaleiknum

ÍBV lauk keppni í Olísdeild kvenna með sigri á deildarmeisturum Fram, 24:22, í Vestmannaeyjum í dag. Sigurinn var sanngjarn. ÍBV var með yfirhöndina frá upphafi til enda. Fram komst aldrei yfir og náði fyrst að jafna metin þegar 13...
- Auglýsing -

Framlengir dvölina hjá Víkingi

Ída Bjarklind Magnúsdóttir hefur skrifað undir framlengingu til tveggja ára á samningi sínum við handknattleiksdeild Víkings. Ída, sem er á 23. aldursári, er uppalin á Selfossi. Hún lék með Stjörnunni áður en hún gekk til liðs við Víking í...

Verður áfram í herbúðum meistaranna

Handknattleikskonan Aldís Ásta Heimisdóttir framlengdi í gær samning sinn við Íslandsmeistara KA/Þórs til tveggja ára. Aldís Ásta, sem er uppalin hjá KA/Þór, lék stórt hlutverk, jafnt í vörn sem sókn, þegar liðið varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn í júní...

Dagskráin: Uppgjör um annað sæti

Síðasta umferð í Olísdeild kvenna í handknattleik fer fram í dag með fjórum leikjum. Fram varð deildarmeistari á síðasta laugardag. Eftirvænting ríkir fyrir viðureign Vals og KA/Þórs sem fram fer í Origohöll Valsara og hefst klukkan 16. Hvort liðið...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -