- Auglýsing -
- Auglýsing -

Olísdeildir

- Auglýsing -

Lokahóf: Matea og Einar Rafn best – Skarphéðinn og Bergrós efnilegust

Matea Lonac markvörður KA/Þórs og Einar Rafn Eiðsson leikmaður KA voru valin bestu leikmenn liða sinna á lokahóf handknattleiksdeildar KA og KA/Þór fór fram á miðvikudaginn.  Skarphéðinn Ívar Einarsson og Bergrós Ásta Guðmundsdóttir voru valin efnilegust hjá sömu liðum...

Eyjamenn sektaðir og þjálfari Selfoss á yfir höfði sér bann

Á fundi aganefndar HSÍ á þriðjudaginn var Handknattleiksdeild ÍBV sektuð um 25 þúsund krónur vegna hegðunar stuðningsmanna ÍBV í leik FH og ÍBV í úrslitakeppni Olísdeildar karla. Var það gert í framhaldi af erindi sem aganefnd barst nokkrum dögum...

Arnar Daði verður Hrannari til halds og trausts

Arnar Daði Arnarsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokksliðs Stjörnunnar og verður hægri hönd Hrannars Guðmundssonar sem stýrt hefur Stjörnuliðinu síðan í byrjun október. Arnar Daði er enginn nýgræðingur í þjálfun meistaraflokksliða né yngri flokka. Síðast kom Arnar Daði að þjálfun...
- Auglýsing -

Grétar Áki til liðs við ÍR

Grétar Áki Andersen hefur verið ráðinn til þjálfunar handknattleiksfólks hjá ÍR. Í tilkynningu handknattleiksdeildar ÍR kemur fram að Grétar Áki eigi að aðstoða Sólveigu Láru Kjærnested þjálfara meistaraflokks kvenna auk þess að taka við þjálfun 3. flokks kvenna. Grétar Áki...

ÍBV leitar að línumönnum

Báðir línumenn kvennaliðs ÍBV í handknattleik, Ásdís Guðmundsdóttir og Elísa Elíasdóttir, ætla að söðla um í sumar, eftir því sem handbolti.is kemst næst. Leita forráðamenn handknattleiksdeildar ÍBV logandi ljósi að leikmönnum til að fylla skarð þeirra. Heimildir handbolta.is herma að...

Einar Bragi hefur samið við IFK Kristianstad

Einar Bragi Aðalsteinsson, hinn nýbakaði landsliðsmaður í handknattleik úr FH, hefur samið við sænska úrvalsdeildarliðið IFK Kristianstad og gengur til liðs við félagið í sumar. Frá þessu greinir Kristianstad í morgun í tilkynningu. Einar Bragi gekk til liðs við FH...
- Auglýsing -

Útlitið var ekki gott um tíma

„Við sýndum gríðarlegan karakter og seiglu með því að koma okkur inn í leikinn á lokakaflanum því útlitið var ekki gott um tíma,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari Vals yfirvegaður, í samtali við handbolta.is í kvöld eftir eins marks...

Haukar fóru illa að ráði sínu í fyrsta úrslitaleiknum

Haukar fór illa að ráði sínu í fyrsta úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna í kvöld. Liðið tapaði niður þræðinum á lokakaflanum og tapaði með eins marks mun, 28:27, í N1-höll Vals við Hlíðarenda. Haukar virtust með öll ráð,...

Dagskráin: Lokaspretturinn að meistarabikarnum

Innan nokkurra daga verða Íslandsmeistarar krýndir í handknattleik kvenna. Í dag hefst lokasprettur tveggja liða, Hauka og Vals, í áttina að sigurlaununum. Fyrsta viðureign liðanna fer fram í N1-höll Vals á Hlíðarenda í dag. Flautað verður til leiks klukkan...
- Auglýsing -

Cornelia bætir við tveimur árum á Selfossi

Cornelia Hermansson, markvörður, hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Umf. Selfoss til tveggja ára. Cornelia kom til Selfoss árið sumarið 2022 frá sænska liðinu Kärra HF en áður hafði hún einnig leikið með Önnereds HK. „Handknattleiksdeildin er gríðarlega ánægð með...

Kári Tómas verður áfram hjá HK

Kári Tómas Hauksson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við HK. Kári lsem leikur sem hægri skytta lék alla 22 leiki liðsins í Olísdeildinni í vetur og skoraði 72 mörk. Áður en Kári Tómas kom upp í meistaraflokki...

Níu dagar í næsta undanúrslitaleik – óvissa um úrslitaleikina

Fjórða viðureign Aftureldingar og Vals í undanúrslitum Íslandsmótsins í handknattleik karla fer fram á heimavelli Vals miðvikudaginn í næstu viku, 15. maí. Afturelding hefur tvo vinninga en Valur einn eftir sigur Aftureldingar í gær, 26:25. Liðið sem fyrr vinnur þrjár...
- Auglýsing -

Mögnuð orka í húsinu – Allt var í góðum málum

„Ég fann það að menn myndu mæta klárir í slaginn en mig óraði samt ekki fyrir að fá annað eins start og raun varð á,“ sagði Sigursteinn Arndal þjálfari FH í samtali við handbolta.is í gærkvöldi eftir að FH...

Mosfellingar eru komnir yfir á ný

Afturelding tók á ný forystu í einvíginu við bikarmeistara Vals í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld. Mosfellingar unnu þriðju viðureignina á heimavelli, 26:25, og hafa þar með tvo vinninga en Valur einn. Afturelding hafði þriggja marka forskot...

Myndskeið: Sigurgleði FH-inga

https://www.youtube.com/watch?v=K88H6Nb1NjM
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -