Þrettándu umferð Olísdeildar karla í handknattleik lýkur í kvöld með tveimur leikjum sem fara fram í Hafnarfirði. Báðar viðureignir hefjast klukkan 19.30. Á Ásvöllum mætast Haukar og ÍR sem um þessar mundir sitja í 10. og 11. sæti Olísdeildar.
Í Kaplakrika etja kappi liðin sem eru í öðru og þriðja sæti, FH og Afturelding. Mikið verður um dýrðir í Kaplakrika fyrir leikinn. Dagskráin hefst klukkan 18 þegar FH-ingurinn, fyrrverandi bæjarstjóri og stjórnarmaður í HSÍ á árum áður, Ingvar Viktorsson, verður með sögustund í Sjónarhóli yfir rjúkandi kaffiveitingum.
Stundarfjórðungi áður en flautað verður til leiks FH og Aftureldingar verður goðsögnin Geir Hallsteinsson heiðraður. Hann lætur af störfum í Kaplakrika um áramótin eftir langt starf. Geir er fyrir löngu orðin goðsögn í íslenskum handknattleik og nafn hans vandlega samofið íþróttinni áratugum saman.
Íslandsmeistaraliðið frá 1984 stendur heiðursvörð og Íslandsmeistarar í 2. flokk frá 1994 verða við grillið fyrir leik.
Þeir sem vilja kynna sér brot af sögu Geirs er m.a. bent á grein sem Sigmundur Ó. Steinarsson blaðamaður ritaði fyrir handbolta.is.
Leikir kvöldsins
Olísdeild karla, 13. umferð:
Ásvellir: Haukar – ÍR, kl. 19.30 – sýndur á Haukartv.
Kaplakriki: FH – Afturelding, kl. 19.30 – sýndur á Stöð2sport.
Staðan í Olísdeild karla:
Valur | 11 | 10 | 0 | 1 | 377 – 309 | 20 |
Afturelding | 10 | 6 | 2 | 2 | 301 – 275 | 14 |
FH | 10 | 6 | 2 | 2 | 291 – 285 | 14 |
ÍBV | 11 | 6 | 2 | 3 | 368 – 334 | 14 |
Stjarnan | 11 | 5 | 3 | 3 | 327 – 314 | 13 |
Fram | 12 | 5 | 3 | 4 | 357 – 354 | 13 |
Selfoss | 11 | 5 | 1 | 5 | 321 – 329 | 11 |
Grótta | 10 | 3 | 2 | 5 | 269 – 269 | 8 |
KA | 11 | 3 | 2 | 6 | 313 – 331 | 8 |
Haukar | 10 | 3 | 1 | 6 | 290 – 284 | 7 |
ÍR | 10 | 2 | 1 | 7 | 281 – 342 | 5 |
Hörður | 11 | 0 | 1 | 10 | 317 – 386 | 1 |