Útlit er fyrir að landsliðskonan og leikmaður ÍR, Katrín Tinna Jensdóttir, sé á batavegi eftir að hafa fengið þungt högg á gagnaugað í fyrri landsleik Íslands og Svartfjallalands í undankeppni Evrópumótsins í handknattleik í síðustu viku. Hún segir við handbolta.is að undanfarnir dagar hafi verið erfiðir en jafnt og þétt stefni heilsan á rétta leið.
„Ég hef verið að trappa mig aðeins upp og prófa mig áfram á hjólinu [þrekhjól – innsk. blm] í vikunni. Ég hef fundið fyrir smá hausverk en það er allt á réttri leið. Þetta tekur meiri tíma en ég bjóst við,“ segir Katrín Tinna við handbolta.is. Hún viðurkennir að vera svolítið óþolinmóð.

„Ég er að vinna þetta svolítið bara einn dag í einu í samráði við sjúkraþjálfara,“ bætir Katrín Tinna við sem gerir sé ljóst að nauðsynlegt er að ana ekki að neinu. Skynsamlegast sé að fara sér í engu óðslega.


