Myndskeið: Arnór Máni tryggði Fram bæði stigin

Markvörðurinn ungi, Arnór Máni Daðason, tryggði Fram bæði stigin í heimsókn liðsins til Stjörnunnar í Mýrina í kvöld. Hann varði síðasta skoti leiksins sem Tandri Már Konráðsson átti á mark Fram á síðustu sekúndu. Lokatölur, 32:31, fyrir Fram sem rauk upp í fjórða sæti deildarinnar með sigrinum. Liðið hefur 11 stig eftir níu leiki. Myndskeið … Continue reading Myndskeið: Arnór Máni tryggði Fram bæði stigin