Sjónvarp Símans sendir út landsleikina við Færeyinga í opinni dagskrá

Báðir landsleikir Íslands og Færeyinga í handknattleik karla verða sendir út í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans, aðalrásinni. Fyrri viðureignin fer fram í Laugardalshöll annað kvöld, föstudag, og hefst klukkan 19.30, en sá síðari á laugardaginn klukkan 17.30. Þetta verða fyrstu leikir íslenska landsliðsins undir stjórn Snorra Steins Guðjónssonar. https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/11/Island_Faereyjar_3og4NOV_MedKostun.mp4