Stjarnan í undanúrslit í fjórða sinn á fimm árum

Stjarnan tryggði sér sæti í undanúrslitum Poweradebikars karla í handknattleik síðdegis með því að leggja KA í Mýrinni í Garðabæ, 26:23. Þetta er í fjórða sinn á síðustu fimm árum sem karlalið Stjörnunnar nær a.m.k. í undanúrslit bikarkeppninnar. Stjarnan var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 12:10. Mikil spenna var í leiknum lengst af en hún … Continue reading Stjarnan í undanúrslit í fjórða sinn á fimm árum