- Auglýsing -
- Auglýsing -

Gunnar Egill Daníelsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Arnór: Verðum að muna að vera stoltir

Arnór Atlason, þjálfari TTH Holstebro og aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins, viðurkennir að vera svekktur að Holstebro hafi ekki tekist ætlunarverk sitt um að komast í undanúrslit úrslitakeppninnar um danska meistaratitilinn. Holstebro hafnaði í fjórða sæti dönsku úrvalsdeildarinnar eftir frábært gengi í...

Þjálfarinn ræddi um framtíð Elvars Arnar

Bennet Wiegert, þjálfari SC Magdeburg, hefur tjáð sig um framtíð Elvars Arnar Jónssonar, sem er sagður fara til Rhein-Neckar Löwen að tímabilinu loknu. Sport Bild hefur slegið því föstu að Elvar Örn gangi til liðs við Ljónin í sumar eftir...

Perla Ruth tekur slaginn í Grill deildinni

Perla Ruth Albertsdóttir hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við handknattleiksdeild Selfoss og er því nú samningsbundin félaginu til sumarsins 2029. Perla Ruth er 29 ára gömul og leikur sem vinstri hornamaður. Hún er þaulreynd landsliðskona sem hefur einnig...

Úrslitin ekki viðurkennd og spilað að nýju í Serbíu

Annar úrslitaleikur RK Vojvodina og RK Partizan verður spilaður að nýju en að þessu sinni fyrir luktum dyrum. Stuðningsmenn Partizan skutu flugeldum inn á völlinn í Novi Sad í leiknum á miðvikudagskvöld. Af þeim sökum ákváðu leikmenn Vojvodina að hætta...
- Auglýsing-

Golla í erfiðri stöðu

Johannes Golla, fyrirliði þýska landsliðsins og línumaður SG Flensburg-Handewitt, er í ansi sérstakri stöðu fyrir leik liðsins gegn MT Melsungen í undanúrslitum Evrópudeildarinnar. Hann gengur til liðs við uppeldisfélag sitt Melsungen í sumar. Möguleikinn á sæti í Meistaradeild Evrópu á...

Handknattleiksdeild Stjörnunnar stendur í ströngu

Í nógu er að snúast hjá handknattleiksdeild Stjörnunnar þessa dagana þar sem undirbúningur fyrir næsta tímabil hjá karla- og kvennaliðunum er í fullum gangi. Viktor Breki Róbertsson hefur nú skrifað undir sinn fyrsta samning við félagið. Viktor Breki er 17...

Sigrún Erla samdi við Stjörnuna

Sigrún Erla Þórarinsdóttir er gengin til liðs við Stjörnuna frá Val, þar sem hún er uppalin. Erla Sif Leósdóttir kom sömuleiðis til Stjörnunnar frá Val í gær. Sigrún Erla er aðeins 18 ára gömul en lék átta leiki og skoraði...

Norskur landsliðsmaður til HØJ Elite

Norski landsliðsmaðurinn Thomas Solstad gengur til liðs við danska B-deildar liðið HØJ Elite frá þýska 1. deildar liðinu TSV Hannover-Burgdorf í sumar. Bætist hann þar með í hóp dönsku landsliðsmannanna Lasse Andersson og Jannick Green sem koma einnig í...
- Auglýsing-

Hákon Daði til Aftureldingar

Hákon Daði Styrmisson er genginn til liðs við Aftureldingu. Kemur hann á frjálsri sölu eftir hálfs árs dvöl hjá ÍBV og skrifar undir þriggja ára samning í Mosfellsbænum. Hákon Daði er 29 ára gamall vinstri hornamaður sem er mikill markaskorari....

Enn eru stuðningsmenn RK Partizan til vandræða – reyksprengjur hæfðu leikmann og dómara

Öðrum úrslitaleik RK Vojvodina og RK Partizan um serbneska meistaratitilinn í gærkvöldi var hætt eftir aðeins 14 mínútna leik. Stuðningsmenn Partizan fleygðu meðal annars reyksprengjum inn á keppnisvöllinn og særðu með því leikmann Vojvodina og annan dómara leiksins. Stuðningsmenn Partizan...

Um höfund

Gunnar Egill Daníelsson hefur unnið við blaðamennsku frá árinu 2018. Fyrst starfaði hann sem fréttastjóri hjá hringbraut.is og vann svo fyrir Stundina (nú Heimildina) sem verktaki. Gunnar Egill starfaði sem íþróttablaðamaður hjá Morgunblaðinu og mbl.is frá 2020 til 2025. Hann hóf störf hjá handbolti.is 1. febrúar 2026 og er félagi Blaðamannafélags Íslands og Samtaka íþróttafréttamanna. Áhugamál fyrir utan íþróttir eru meðal annars hryllingsmyndir og málmtónlist. Netfang: [email protected]
446 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -