Öðrum úrslitaleik RK Vojvodina og RK Partizan um serbneska meistaratitilinn í gærkvöldi var hætt eftir aðeins 14 mínútna leik. Stuðningsmenn Partizan fleygðu meðal annars reyksprengjum inn á keppnisvöllinn og særðu með því leikmann Vojvodina og annan dómara leiksins.
Stuðningsmenn Partizan hafa áður komið sér í vandræði með því að fleygja reyksprengjum inn á völlinn. Það gerðu þeir fyrir síðari viðureign liðsins gegn AEK Aþenu í átta liða úrslitum Evrópubikarkeppni karla fyrir rúmu ári síðan.
Leikmenn AEK yfirgáfu þá leikstaðinn og liðunum var gert að spila síðari leik sinn á hlutlausum velli. Partizan fékk í kjölfarið heimaleikjabann og háar sektir.
Vojvodina hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem farið er yfir málavexti í öðrum úrslitaleik liðsins gegn Partizan á heimavelli Vojvodina í Novi Sad í gærkvöldi og meðal annars bent á að dómarar leiksins hafi þrátt fyrir allt dæmt Partizan sigur.
Stuðningsmenn ekki fjarlægðir og leikmenn óttuðust um öryggi sitt
„Aldrei fyrr hefur svona nokkuð gerst í serbneskum handknattleik! Stuðningsmenn Partizan trufluðu framkvæmd leiksins í tvígang. Reyksprengja meiddi leikmann okkar Fran Milea, dómarann Markovic og hugsanlega fleiri sem voru nærri sprengjunni eins og sjá má í sjónvarpsútsendingunni.
Verndarnetið fyrir aftan markið þar sem stuðningsmenn Partizan voru samankomnir var rifið niður og skemmt. Þrátt fyrir að truflunin hafi varað í meira en klukkustund ákvað lögreglan ekki að fjarlægja stuðningsmenn Partizan og leyfði leiknum að halda áfram.
Eftirlitsmaðurinn fyrirskipaði að leikurinn skyldi hefjast að nýju innan stundarfjórðungs þar sem engu hafði verið breytt. Leikmenn Partizan sneru aftur á völlinn á meðan leikmenn Vojvodina neituðu að gera það þar sem þeim þótti öryggi og líf allra hlutaðeigandi ekki vera tryggt.
Dómararnir úrskurðuðu að leiknum væri lokið og að Partizan hafi formlega unnið hann. Þegar stöðva þurfti leikinn var Vojvodina 6:5 yfir eftir 14 mínútna leik,“ sagði í yfirlýsingu Vojvodina.



