- Auglýsing -
Eins og undanfarin ár hélt handbolti.is skrá yfir helstu breytingar sem hafa orðið eða verða á högum íslenskra handknattleiksþjálfara, jafnt utan lands sem innan, fyrir næsta keppnistímabil, 2026/2027.
Hér fyrir neðan eru helstu breytingar meðal þjálfara og staðfestar voru fyrir 1. júní 2026 þegar handbolti.is lagði upp laupana.
Skráin var ekki uppfærð eftir 31. maí 2026.
- Hannes Jón Jónsson hættir þjálfun Alpla Hard.
- Hilmar Guðlaugsson lætur af starfi þjálfara HK.
- Hilmar Guðlaugsson tekur við sem afreksþjálfari kvenna á Selfossi.
- Dagur Snær Steingrímsson tekur við þjálfun kvennaliðs HK.
- Sebastian Alexandersson hættir með kvennalið Víkings.
- Sebastian Alexandersson tekur við þjálfun kvennaliðs Aftureldingar.
- Eva Hrund Harðardóttir tekur við kvennaliði Víkings.
- Díana Guðjónsdóttir hættir þjálfun kvennaliðs Hauka.
- Díana Guðjónsdóttir tekur við þjálfun hjá Fram.
- Gunnar Valur Arason hættir þjálfun kvennaliðs Fjölnis.
- Hrannar Guðmundsson hættir þjálfun karlaliðs Stjörnunnar.
- Sverrir Eyjólfsson tekur við þjálfun karlaliðs Stjörnunnar.
- Tandri Már Konráðsson tekur við þjálfun karlaliðs Stjörnunnar.
- Elías Már Halldórsson lætur af störfum hjá Ryger og tekur við þjálfun Storhamar B.
- Stefán Árnason hættir þjálfun karlaliðs Aftureldingar.
- Davíð Örn Hlöðversson og Lárus Gunnarsson hætta þjálfun karlaliðs Gróttu.
- Þór Guðmundsson tekur við þjálfun kvennaliðs Fjölnis.
- Grétar Áki Andersen hættir þjálfun kvennaliðs ÍR.
- Andri Sigfússon tekur við þjálfun karlaliðs Gróttu.
- Aron Örn Heimisson verður aðstoðarþjálfari karlaliðs Gróttu.
- Carlos Martin Santos hætti þjálfun karlaliðs Selfoss og tók við HK Aranäs.
- Davíð Georgsson tekur við þjálfun kvennaliðs ÍR.
- Björgvin Þór Hólmgeirsson verður aðstoðarþjálfari kvennaliðs ÍR.
- Jón Brynjar Björnsson verður aðstoðarþjálfari kvennaliðs Lugi.
- Ragnar Hermannsson verður styrktarþjálfari meistaraflokka Víkings.
- Aron Pálmarsson verður aðalþjálfari karlaliðs FH.
- Sigursteinn Arndal verður aðstoðarþjálfari FH.
Sjá einnig:
Konur – helstu félagaskipti 2026
Karlar – helstu félagaskipti 2026
- Auglýsing -


