- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Naumt tap hjá Donna og félögum í fyrsta úrslitaleiknum

- Auglýsing -

Niklas Landin var hetja Aalborg Håndbold í fyrsta úrslitaleik liðsins við Skanderborg AGF um danska meistaratitilinn í handknattleik. Hann varði vítakast Johan Hansen á síðustu sekúndu og kom þar með í veg fyrir að viðureignin færi í framlengingu. Aalborg vann, 30:29, eftir að hafa skoraði tvö síðustu mörkin. Næsti leikur liðanna, sem getur orðið sú síðari, verður á heimavelli Skanderborg AGF á fimmtudaginn.

Kristján Örn Kristjánsson, Donni, var markahæstur hjá Skanderborg AGF ásamt áðurnefndum Hansen vítaksyttu. Þeir skoruðu sjö mörk hvor. Donni var sérlega aðsópsmikill í fyrri hálfleik er hann skoraði fimm mörk og var með fullkomna skotnýtingu.


Donni og félagar voru með yfirhöndina allan fyrri hálfleik í viðureigninni og voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 16:14. Meistarar síðustu ára, Aalborg, sóttu í sig veðrið í síðari hálfleik og náðu fjögurra marka forskoti upp úr miðjum hálfleik, 24:20. Þar með var kálið ekki sopið. Harðskeyttir leikmenn Skanderborg sóttu í sig veðrið, m.a. með fjórum mörkum í röð undir lokin.

Juri Knorr skoraði átta mörk fyrir Aalborg og Mads Hoxer skoraði sjö mörk.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -