- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Arnar Freyr og Reynir Þór leika til úrslita í Evrópudeildinni

- Auglýsing -

Arnar Freyr Arnarsson og Reynir Þór Stefánsson leika til úrslita með MT Melsungen í Evrópudeild karla í handknattleik á morgun. Þeir tóku þátt í sigri Melsungen í dag á Flensburg í undanúrslitaleik í Barclays Arena í Hamborg, 37:30. Melsungen mætir THW Kiel í úrslitaleiknum. Kiel lagði Montpellier, 29:28, í hinni viðureign undanúrslita. Sú viðureign fór fram fyrir hádegið.

Arnar Freyr skoraði tvö mörk í undanúrslitaleiknum í dag auk þess að vera öflugur í vörninni. Reynir Þór Stefánsson skoraði eitt mark.


MT Melsungen hefur aldrei unnið eitt af Evrópumótum félagsliða.

Melsungen var marki yfir í hálfleik, 15:14, en réði síðan lögum og lofum í síðari hálfleik. Munaði ekki síst um frammistöðu Nebojsa Simić markvarðar.

Lettinn Dainis Kristopans var markahæstur með níu mörk. Daninn Simon Pytlick var markahæstur hjá Flensburg með átta mörk.

Flensburg vann Evrópudeildina á síðasta og þarsíðasta ári en mætir Montpellier í viðureign um 3. sætið á morgun.

Wolff afgreiddi Montpellier

Andreas Wolff sá til þess að THW Kiel vann Montpellier í hnífjöfnum undanúrslitaleik, 29:28. Hann varði tvö skot á síðustu fimm sekúndum leiksins, þar af síðara skotið af línu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -