Sigrún Erla Þórarinsdóttir er gengin til liðs við Stjörnuna frá Val, þar sem hún er uppalin. Erla Sif Leósdóttir kom sömuleiðis til Stjörnunnar frá Val í gær.
Sigrún Erla er aðeins 18 ára gömul en lék átta leiki og skoraði þrjú fyrir meistaraflokk Vals í Olísdeildinni á síðasta tímabili auk 15 leikja fyrir Val 2 í Grill 66 deildinni, þar sem hún skoraði 12 mörk.
„Sigrún er mjög öflugur línumaður en einnig hörku varnarmaður sem er mikill kostur. Hún tók þátt í 8 leikjum með Val á síðasta tímabili og skoraði 3 mörk svo hún er búin að fá smjörþefinn af efstu deild en kemur nú til okkar og vonast til að taka næsta skref.
Við erum gríðarlega ánægð að fá Sigrúnu til félagsins og hlökkum til að sjá hana spila í bláu treyjunni,“ sagði í tilkynningu handknattleiksdeildar Stjörnunnar.


