- Auglýsing -
One Veszprém vann fyrsta úrslitaleikinn við Pick Szeged um ungverska meistaratitilinn í handknattleik karla í kvöld, 38:36. Leikurinn fór fram í Veszprém og var heimaliðið yfir í hálfleik, 19:17. Næst mætast liðin í Pick Arena í Szeged á þriðjudaginn.
Bjarki Már Elísson, sem yfirgefur One Veszprém í sumar, var ekki í leikmannahópi liðsins í kvöld. Hugo Descat var markahæstur með 14 mörk, sjö úr vítaköstum. Luka Cindric var næstur með sjö mörk.
Janus Daði Smárason lék í 52 mínútur með Pick Szeged og skoraði þrjú mörk. Imanol Garciandia Alustiza var atkvæðamestur hjá Pick Szeged með níu mörk.
- Auglýsing -



