Sveinn Jóhannsson skoraði þrjú mörk fyrir Chambéry í tveggja marka sigri liðsins á Limoges á útivelli í 28. umferð frönsku 1. deildarinnar í handknattleik, 37:35. Sveinn lék í rúmar 20 mínútur.
Chambéry er í fimmta sæti deildarinnar og á veika von um að skáka Limoges sem er þremur stigum ofar í fjórða sæti. Sveinn og félagar verða að halda vel á spilunum á lokasprettinum til þess að halda a.m.k. fimmta sætinu. Frakkland fær fimm sæti í Evrópukeppni félagsliða (Meistaradeild Evrópu og Evrópudeildinni) á næsta keppnistímabili. Saint-Raphaël er aðeins tveimur stigum á eftir Chambéry þegar tvær umferðir eru eftir.
Enn eru tvær umferðir eftir af frönsku 1. deildinni og virðist enginn kvarta þótt handboltakeppninni sé ekki lokið þegar sumar er runnið í garð í Frakklandi með steikjandi sterkju hita víða um landið.
PSG er meistari 12. árið í röð eins og handbolti.is sagði frá í gær.
Fréttin hefur verið uppfærð eftir að ljóst varð í huga síðuskrifara að Frakkland fær fimm sæti í Evrópukeppni félagsliða á næstu leiktíð í stað fjögurra.



