- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Meistarar tólfta tímabilið í röð

- Auglýsing -

París Saint-Germain varð í gærkvöldi Frakklandsmeistari, tólfta árið í röð, eftir 34:31 sigur á Nantes í toppslag frönsku 1. deildarinnar. PSG hefur nú alls unnið deildina 13 sinnum og það á undanförnum 14 tímabilum.

Tvær umferðir eru eftir í deildinni á yfirstandandi tímabili og er PSG á toppnum, fjórum stigum fyrir ofan Nantes í öðru sætinu. Nantes getur ekki náð PSG vegna innbyrðis viðureigna.


Nantes hefði með sigri getað gert toppbaráttuna æsispennandi í síðustu umferðunum en eftir hörkuleik í París í gærkvöldi tókst PSG að sigla fram úr og vinna þriggja marka sigur.

Elohim Prandi var markahæstur í liði PSG með níu mörk og Daninn Mikkel Løvkvist varði 14 skot í markinu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -