Lokahóf handknattleiksdeildar FH var haldið með pompi og prakt á Ölhúsinu í Hafnarfirði í gær. Leikmenn, þjálfarar, stjórnarmenn og sjálfboðaliðar fjölmenntu á hófið sem var virkilega vel heppnað.
Fjölmörg verðlaun voru veitt, sem og aðrar viðurkenningar.
Meistaraflokkur karla:
Besti leikmaður: Garðar Ingi Sindrason.
Efnilegasti leikmaður: Ómar Darri Sigurgeirsson.
Mikilvægasti leikmaður: Jón Bjarni Ólafsson.
RISA-bikar baráttuanda og FH-hjarta: Birgir Már Birgisson.
Meistaraflokkur kvenna:
Besti leikmaður: Szonja Szöke.
Efnilegasti leikmaður: Eva Guðrúnardóttir Long.
Mikilvægasti leikmaður: Thelma Dögg Einarsdóttir.
RISA-bikar baráttuanda og FH-hjarta: Telma Medos.
ÍH:
Besti leikmaður: Bjarki Jóhannsson.
Efnilegasti leikmaður: Brynjar Narfi Arndal.
Mikilvægasti leikmaður: Benedikt Elvar Skarphéðinsson.
Baráttubikarinn: Þórarinn Þórarinsson.
Áfangaleikir:
Garðar Ingi Sindrason: 100 leikir.
Gyða Kristín Ásgeirsdóttir: 100 leikir.
Símon Michael Guðjónsson: 100 leikir.
Leonharð Þorgeir Harðarson: 200 leikir.
Jakob Martin Ásgeirsson: 300 leikir.
Silfurmerki FH með lárviðarsveig fyrir 20 ára frábært starf fyrir FH:
Hilmar Bjarki Snorrason.
Hilmir Lundevik.
Sigrún Gilsdóttir.
Sjálfboðaliðaviðurkenning fyrir frábært framlag til hkd. FH:
Ásdís Björk Kristjánsdóttir.
Björgvin Þór Þorgeirsson.
Lísa Sigurðardóttir.
Kveðjur og þakkir
Garðar Ingi, Birgir Már og Ágúst Birgisson voru kvaddir og þakkað fyrir þeirra ómetanlega framlag til félagsins. Garðar Ingi og Birgir Már halda út í atvinnumennsku í sumar og fyrirliðinn Ágúst Birgisson hefur lagt skóna á hilluna.
Ólafi Guðlaugssyni var þakkað sérstaklega fyrir stjórnarsetu hans og sjálfboðaliðastörf fyrir félagið. Þá var Einari Andra Einarssyni og Sigurgeiri Árna Ægissyni veittur þakklætisvottur fyrir góð störf.



