- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Molakaffi: Alonso, Nocandy, Koppang

- Auglýsing -
  • Spánverjinn Raul Alonso hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Alsír í handknattleik karla. Alonso hefur víða þjálfað hjá félagsliðum á síðustu árum. Hann tók m.a. við af Rúnari Sigtryggssyni hjá Leipzig á síðasta sumri en hélt ekki starfinu nema í nokkra mánuði. Þar áður var Alonso hjá Eurofarm Pelister og enn fyrr með HC Erlangen svo nokkurra liða sé getið. Á síðasta áratug lék Spánverjinn um skeið með THW Kiel undir stjórn Alfreðs Gíslasonar.
  • Franska landsliðskonan Méline Nocandy hefur ákveðið að framlengja veru sína hjá franska liðinu Brest Bretagne til tveggja ára. Hún kom til félagsins fyrir tveimur árum og hefur blómstrað í leik sínum.
  • Danska úrvalsdeildarliðið Esbjerg hefur sagt upp samningi sínum við sænsku landsliðskonuna Ninu Koppang. Hún hefur verið hjá félaginu í hálft annað ár. Þrálát meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá Koppang. Fyrir vikið hefur hún ekki nýst Esbjerg-liðinu sem skyldi.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -