Íslensku landsliðskonurnar Andrea Jacobsen, Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir unnu í dag þýska meistaratitilinn í handknattleik kvenna með Blomberg-Lippe er liðið lagði Borussia Dortmund í oddaleik um titilinn, 30: 26.
Andrea, Díana og Elín feta þar með í fótspor Kristbjargar Magnúsdóttur sem fram til þessa dags var eina íslenska handknattleikskonan sem orðið hefur þýskur meistari í handbolta. Kristbjörg vann vestur-þýska meistaratitilinn tvö ár í röð, 1975 og 1976 með TuS Eintracht Minden.
Elín Rósa, sem er að ljúka sínu fyrsta keppnistímabili með Blomberg-Lippe, skoraði fjögur mörk í dag. Díana Dögg skoraði einnig fjögur mörk en Andrea skoraði þrisvar. Þetta var kveðjuleikur Andreu með Blomberg-Lippe og ekki amalegt að kveðja með þessum hætti. Hún flytur heim í sumar og gengur til liðs við ÍBV. Díana Dögg og Elín Rósa halda áfram með liðinu.
Þetta er í fyrsta sinn sem Blomberg-Lippe vinnur þýska meistaratitilinn en liðið var einnig deildarmeistari í vor.
Blomberg-Lippe var marki yfir í hálfleik, 13:12. Í síðari hálfleik var liðið hins vegar nokkuð sterkara og ekki síst var varnarleikur liðsins til mikils sóma.
Emma Olsson, sem varð Íslandsmeistari með Fram fyrir fjórum árum, skoraði eitt mark fyrir Dortmund í leiknum í dag.


