- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Aron og Sigursteinn hafa sætaskipti

- Auglýsing -

Tilkynnt var í dag að Aron Pálmarsson verði aðalþjálfari karlaliðs FH frá og með næsta keppnistímabili. Hann tekur við af Sigursteini Arndal sem verið hefur aðalþjálfari FH-liðsins í sjö ár. Sigursteinn fer í hlutverk það sem Aron hefur sinnt síðan í byrjun febrúar og verður aðstoðarþjálfari.


Þetta verður í fyrsta sinn sem Aron verður aðalþjálfari handknattleiksliðs. Hann lagði keppnisskóna á hilluna í fyrra eftir átta mánaða veru hjá ungverska meistaraliðinu One Veszprém. Aron kom til starfa hjá FH við heimkomu síðasta sumar. Hlutverk hans innan liðsins jókst jafnt og þétt eftir því sem á keppnistímabilið leið.

Aron er einn fremsti handknattleiksmaður sögunnar. Hann varð sigursæll með félagsliðum sínum á ferlinum: THW Kiel, Barcelona, Veszprem og Aalborg Håndbold og varð landsmeistari með hverju þeirra auk FH vorið 2024. Einnig vann Aron Evrópumeistaratitilinn með THW Kiel og Barcelona og tvisvar valinn besti leikmaður úrslitahelgar Meistaradeildar Evrópu, 2014 og 2016.

Aron lék alls 184 landsleiki og skoraði í þeim 694 mörk.

Meistari 2024

Undir stjórn Sigursteins varð FH Íslandsmeistari vorið 2024 og deildarmeistari í Olísdeild 2024 og 2025. Í vor hafnaði FH í öðru sæti í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn og varð einnig í öðru sæti í Olísdeildinni. FH komst einnig í undanúrslit bikarkeppninnar snemma árs og líka 2022.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -