Bennet Wiegert, þjálfari SC Magdeburg, hefur tjáð sig um framtíð Elvars Arnar Jónssonar, sem er sagður fara til Rhein-Neckar Löwen að tímabilinu loknu.
Sport Bild hefur slegið því föstu að Elvar Örn gangi til liðs við Ljónin í sumar eftir eins árs dvöl hjá Þýskalandsmeisturum Magdeburg. Frakkinn öflugi Thibaud Briet gangi þá til liðs Magdeburg frá HBC Nantes.
Elvar Örn er sagður á leið til Rhein-Neckar Löwen
Ekkert félaganna hefur staðfest komur eða brottfarir þeirra að svo stöddu en bæði Elvar Örn og Briet eru samningsbundnir félögum sínum til sumarsins 2028.
Ósk hans vel skiljanleg
„Hann vill spila meira í sókninni. Við þurfum að sjá hvort við getum fundið einhverja lausn sem kemur sér vel fyrir báða aðila. Í öllum samræðum sem ég hef átt við hann hefur mínútufjöldi aldrei verið umræðuefnið.
Hann kom til okkar eftir að hafa átt í meiðslavandræðum um skeið og er okkur gífurlega mikilvægur í vörn og hröðum leik. Á sama tíma er ósk hans vel skiljanleg því hann býr yfir afskaplega góðum kostum sóknarlega.
Í keppnisíþróttum verður maður stundum að gangast við því að leikmenn hafi aðrar hugmyndir en maður sjálfur um framtíð sína,“ sagði Wiegert um Elvar Örn í samtali við Sport Bild.


