- Auglýsing -
Elín Klara Þorkelsdóttir og samherjar í IK Sävehof fara vel af stað í undanúrslitaeinvígi við Höörs HK H 65 um sænska meistaratitilinn í handknattleik. Sävehof vann í kvöld með þriggja marka mun á heimavelli, 31:28, eftir að hafa verið marki yfir í hálfleik, 16:15.
Elín Klara var næstmarkahæst hjá Sävehof-liðinu með sex mörk, tvö þeirra úr vítaköstum. Einnig átti hún tvær stoðsendingar.
Næsti mætast liðin í Höör á fimmtudaginn. Vinna þarf þrjá leiki til þess að komast í úrslitaeinvígið. IK Sävehöf varð deildarmeistari í vor og vann Skuru í átta liða úrslitum, 3:0. Höörs HK H 65 lagði bikarmeistara Boden með þremur vinningum gegn einum í átta liða úrslitum.
- Auglýsing -



