- Auglýsing -
Íslendingar fjölmenntu í Malmö Arena í gær og studdu dyggilega við bakið á íslenska landsliðinu þegar það mætti Króötum í fyrstu umferð milliriðlakeppni Evrópumótsins. Því miður dugði stuðningurinn ekki til þess að koma í veg fyrir tap Íslands í leiknum, 30:29.
Vel á þriðja þúsund Íslendingar lögðu leið sína á leikinn og drógu að vanda ekki af sér, ekki fremur en Sérsveitin sem fylgt hefur landsliðinu frá upphafi mótsins.
Hafliði Breiðfjörð ljósmyndari gaf Íslendingum í Malmö Arena auga með myndavél sinni eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan.
-smellið á myndirnar til þess að sjá þær stærri.
- Auglýsing -

































