FH-ingurinn Jón Bjarni Ólafsson verður gjaldgengur með liðinu í kvöld þegar FH og Valur mætast öðru sinni í úrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik í Kaplakrika. Jón Bjarni hlaut útilokun með rauðu og bláu spjaldi snemma á upphafsmínútum síðari hálfleiks fyrstu viðureignar liðanna í N1-höllinni á föstudagskvöld.
Aganefnd kom saman á laugardaginn og varð það niðurstaða nefndarinnar að ekki skuli aðhafast frekar vegna málsins. Það þýðir að Jón Bjarni getur mætt galvaskur til leiks með samherjum sínum í kvöld. Flautað verður til leiks í Kaplakrika klukkan 19.30.
FH-ingar eiga harma að hefna í kvöld vegna taps, 37: 33, í viðureigninni á föstudaginn.
Leikurinn verður væntanlega sendur út beint á Handboltapassanum og í opinni dagskrá í sjónvarpi Símans.
Gert er ráð fyrir að Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæmi leikinn í Kaplakrika.
Aganefnd HSÍ | Úrskurður 25.04.’26



