Færeyski handknattleiksmaðurinn Trúgvi Hávardsson hefur samið við HK til tveggja ára frá og með næstu leiktíð. Trúgvi kemur til HK frá StÍF þar sem hann hefur spilað upp alla yngri flokka.
„Trúgvi er ungur og mjög spennandi leikstjórnandi sem við erum mjög stoltir af að fá til okkar næstu 2 ár. Trúgvi var mikilvægur hlekkur í U21 landsliði Færeyja sem fór í undanúrslit á HM í Póllandi sl. sumar og hefur verið besti leikmaðurinn í færeysku deildinni í vetur ef tekið er mið af tölfræði. Við teljum Trúgva passa fullkomnlega inn í okkar umhverfi og leikskipulag og hlökkum til að sjá hann bæta sig í HK-treyjunni á næstu árum,“ segir í tilkynningu HK í dag.
Töluverðar breytingar
Ljóst er að talsverðar breytingar verða á liði HK fyrir næstu leiktíð. Tryggvi er fjórði leikmaðurinn sem gengur til liðs við HK. Aðrir eru Alex Máni Oddnýjarson, Tómas Bragi Lorriaux Starrason og Andrew Wisman.
Að sama skapi hafa fjórir leikmenn HK á síðustu leiktíð kosið að róa á ný mið: Sigurður Jefferson Guarino, Hjörtur Ingi Halldórsson, Haukur Ingi Hauksson og Ágúst Guðmundsson.



