Kristján Örn Kristjánsson, Donni, skoraði fjögur mörk úr jafnmörgum tilraunum þegar lið hans PAUC vann Chambéry, 29:28, í frönsku 1. deildinni í handknattleik en um var að ræða frestaðan leik úr fjórðu umferð frá síðasta hausti.
Donni skoraði m.a. sigurmarkið rétt áður en leiktíminn var úti eins sjá má á meðfylgjandi myndskeiði.
Leikurinn var hnífjafn og æsilega spennandi frá upphafi til enda. PAUC var marki yfir í hálfleik, 16:15.
Með sigrinum færðist PAUC upp í fjórða sæti deildarinnar. Liðið hefur 30 stig eftir 23 leiki. Aðeins PSG; Montpellier og Nantes er nú fyrir ofan. Nimes hefur einnig 30 stig en hefur leikið einum leik fleira.
Sandro Mestric, samherji Donna og markvörður, varði allt hvað af tók í dag sem kom sér einstaklega vel í jöfnum leik. Mestric var með 40% hlutfallsmarkvörslu.
Staðan: