Orri Freyr Þorkelsson og liðsfélagar í Sporting frá Lissabon stukku upp í annað sæti A-riðils Meistaradeildar Evrópu í kvöld með sigri á Hauki Þrastarsyni og liðsmönnum Dinamo Búkarest, 34:25, í Lissabon í síðasta leik 9. umferðar. Orri Freyr skoraði fjögur mörk.
Sporting hefur 13 stig, er þremur stigum á eftir Vezprém sem vann Eurofarm Pelister fyrr í kvöld, 33:26, á heimavelli.
Eftir tvo tapleiki í röð er Dinamo Búkarest fallið niður í fimmta sæti A-riðils með stigin sín tíu. Haukur skoraði þrjú mörk í leiknum og átti eina stoðsendingu. André Gómez var markahæstur með sex mörk.
Eins og oft áður voru Costa-bræður markahæstir hjá Sporting. Francisco og Matim skoruðu átta mörk hvor.
Annan leikinn í röð fór norski markvörður Sporting, Andre Bergsholm Kristensen, á kostum. Hann varði 16 skot, 41%.
Daninn Lasse Bredekjær Andersson fór á kostum og skoraði 13 mörk fyrir Füchse Berlin sem lagði PSG í París, 37:34.
Staðan í A-riðli:
Sjá einnig: Aron og Bjarki öflugir – Viktor vann Íslendingaslag – myndskeið