Tvö frönsk lið leika unnu sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildar kvenna í handknattleik um helgina þegar síðari viðureignir átta liða úrslita fóru fram. Franska meistaraliðið Metz hefur átt sæti í undanúrslitum af og til undanfarin ár en meiri athygli vekur að Brest Bretagne verður ekki einnig með í undanúrslitum þetta árið. Bretaníuliðið hefur aðeins einu sinni áður náð svo langt í Meistaradeild Evrópu, vorið 2021.
Auk frönsku liðanna tveggja verða Evrópumeistarar Györ með úrslitahelgina í Búdapest og rúmenska liðið CSM frá Búkarest undir stjórn Bojönu Popovic.
Dönsku liðin Odense Håndbold og Team Esbjerg heltust bæði úr lestinni en þau komust alla leið í undanúrslit á síðasta ári. Fyrrnefnda liðið lék til úrslita við Györ.

Úrslit leikja átta liða úrslita:
Gloria Bistrita – Brest Bretagne 35:36 – 30:36.
-Brest Bretagne Handball vann samanlagt, 72:65.
Team Esbjerg – CSM Bucuresti 26:25–27:37.
-CSM Bucuresti vann samanlagt, 62:53
FTC-Rail Cargo Hungaria – Metz Handball 31:31 – 28:31.
Metz Handball vann samanlagt, 62:59.
Odense Håndbold – Györi Audi ETO KC 28:36 – 25:40.
Györi Audi ETO KC vann samanlagt, 76:53.
- Úrslitahelgi Meistaradeildar kvenna fer að vanda fram í Búdapest í Ungverjalandi 6. og 7. júní.



