- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Krabbameinið á bak og burt hjá Herrem

- Auglýsing -

Þær miklu gleðifréttir bárust af norska reynsluboltanum Camillu Herrem í gær að hún væri laus við brjóstakrabbamein sem hún hefur glímt við frá síðasta sumri.

Herrem, sem er 39 ára gömul, sneri þrátt fyrir krabbameinsgreininguna aftur á handboltavöllinn með liði Sola í byrjun september á síðasta ári, rétt rúmum tveimur mánuðum eftir að hún tilkynnti að hún væri með krabbamein.


„Það gengur allt saman mjög vel. Ég er í frábæru formi. Handboltinn gengur vel og fjölskyldan og ég höfum það gott þannig að ég get ekki kvartað. Ég er krabbameinslaus eins og það er kallað. Ég fór í skoðanir eftir aðgerðina og læknarnir fundu ekkert nýtt,“ sagði Herrem í samtali við Nettavisen.

„Þetta er svolítið skrítið því ég vil ekki „jinxa“ neitt þegar ég segi þetta upphátt, en ég hef vitað þetta síðan í desember. Mér líður mjög vel og hlutirnir hafa gengið vel síðan ég gekkst undir aðgerð,“ bætti hún við.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -