- Auglýsing -
FH og Valur mætast öðru sinni í úrslitaeinvígi Olísdeildar karla í kvöld. Leikurinn fer fram í Kaplakrika klukkan 19.30 og verður sýndur í beinni útsendingu á Handboltapassanum.
Staðan er 1:0 fyrir Val í einvíginu eftir 37:33 sigur í fyrsta leik í N1 höllinni á Hlíðarenda en vinna þarf þrjá leiki til þess að hampa Íslandsmeistaratitlinum.
Heimavöllurinn hefur reynst báðum liðum afskaplega vel í úrslitakeppninni enda hafa þau bæði unnið alla heimaleiki sína í henni til þessa; Valur fjóra og FH þrjá.
Leikur kvöldsins
Olísdeild karla – úrslit, annar leikur:
Kaplakriki: FH – Valur kl. 19.30
- Auglýsing -



