Landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson, leikmaður One Veszprém í Ungverjalandi, var nýverið valinn mikilvægasti leikmaður bikarhelgarinnar í Ungverjalandi þegar liðið vann bikarmeistaratitilinn. Hann á sér draum um að komast í undanúrslitahelgina, „Final Four,“ í Meistaradeild Evrópu.
Bjarki Már hefur aldrei á sínum ferli komist svo langt í Meistaradeildinni en fyrir höndum hjá Veszprém er snúin viðureign gegn ríkjandi Þýskalandsmeisturum Füchse Berlín, heima og að heiman, í átta liða úrslitum keppninnar. Fyrri leikur liðanna fer fram í Berlín á fimmtudag.
„Það var mikilvægt að vinna þennan bikar, hann var sá fyrsti sem við áttum möguleika á að vinna þetta vorið. Að vera valinn mikilvægasti leikmaðurinn var sérstaklega ánægjulegt og veitir mér auðvitað aukið sjálfstraust í framhaldinu.
Ég vona að það hjálpi mér að haldast í góðu formi það sem eftir er af tímabilinu. Ég reyni að sýna hvað ég get á hverjum degi, ég vil alltaf spila vel,“ sagði Bjarki Már í samtali við heimasíðu Veszprém.
Aldrei spilað þar áður
Spurður hvaða merkingu „Final Four,“ sem fer fram í Lanxess Arena í Köln, hefði fyrir hann sagði Bjarki Már:
„Ég hef aldrei spilað þar áður þannig að sem stendur er það einungis draumur. Það myndi vera mjög þýðingarmikið fyrir mig ef sá draumur gæti ræst.
Ég vil svo gjarna komast þangað, félagið og stuðningsmenn eiga það skilið. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að komast þangað!“


