Haukur Þrastarson, leikstjórnandi Rhein-Neckar Löwen, og Elliði Snær Viðarsson, línumaður VfL Gummersbach, eru báðir í úrvalsliði 29. umferðar þýsku 1. deildarinnar eftir að hafa staðið sig vel í leikjum með liðum sínum síðastliðið fimmtudagskvöld.
Haukur átti magnaðan leik fyrir Rhein-Neckar Löwen í 32:30 tapi fyrir Ými Erni Gíslasyni og félögum í Frisch Auf! Göppingen.
Haukur skoraði 11 mörk, þar af fjögur úr vítaköstum, og gaf auk þess átta stoðsendingar. Er þetta í fjórða sinn á tímabilinu sem Selfyssingurinn er valinn í úrvalslið umferðarinnar í þýsku deildinni.
Elliði Snær skoraði fjögur mörk og var öflugur í vörninni þegar Gummersbach tapaði 28:26 fyrir Füchse Berlín. Er það einnig í fjórða sinn á tímabilinu sem Eyjamaðurinn er valinn í úrvalslið umferðar í deildinni.



