- Auglýsing -
Ísabella Haraldsdóttir, ungur og efnilegur leikstjórnandi hjá HK, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir til næstu tveggja ára, sumarsins 2028.
Ísabella er einungis 16 ára gömul og lék sína fyrstu leiki fyrir meistaraflokk liðsins, þrjá talsins, í Grill 66 deildinni á nýafstöðnu tímabili.
Hún hefur annars verið lykilmaður í 3. flokki HK og verið viðloðandi yngri landslið Íslands. Auk þess að spila sem leikstjórnandi getur Ísabella leyst stöðu vinstri skyttu.
HK vann Grill 66 deildina á tímabilinu og leikur því í Olísdeildinni að nýju á næsta tímabili.
- Auglýsing -



