Victor Norlyk fékk heilahristing og kastaði upp eftir leik með Mors-Thy gegn Bjerringbro-Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni um þarsíðustu helgi. Af þeim sökum gat hann ekki spilað um nýliðna helgi en er í danska landsliðshópnum sem landsliðsþjálfarinn Nikolaj Jacobsen tilkynnti í dag.
Danmörk mætir Þýskalandi í tveimur vináttulandsleikjum 15. og 17. maí en ekki liggur ljóst fyrir hvort Norlyk, sem er 22 ára leikstjórnandi, geti tekið þátt í þeim.
„Hann er valinn með fyrirvara. Ef honum líður einungis smávegis illa mun hann ekki taka þátt. Ég á í nánum samskiptum við Mors-Thy. Ef þeir finna fyrir minnstu óþægindum yfir því að senda hann frá sér mun hann ekki spila,“ sagði Jacobsen í samtali við TV Midtvest.
Norlyk hefur átt frábært tímabil fyrir Mors-Thy og gengur til liðs við HBC Nantes í Frakklandi í sumar.



