Þýska félagið HSG Wetzlar stendur þessa dagana í ströngu við að semja við leikmenn fyrir karlaliðið, sem Rúnar Sigtryggsson þjálfar, þrátt fyrir að ekki liggi fyrir hvort Wetzlar muni leika áfram á meðal þeirra bestu eða í B-deildinni á næsta tímabili.
Í síðustu viku var tilkynnt að ungverski markvörðurinn Laszlo Bartucz kæmi til Wetzlar í sumar frá MT Melsungen. Samdi Bartucz til sumarsins 2028, óháð því í hvaða deild liðið mun spila á næsta tímabili.
Í dag var svo tilkynnt að hægri hornamaðurinn Tristan Kirschner hafi einnig skrifað undir tveggja ára samning og að sá samningur sé sömuleiðis óháður því í hvaða deild Wetzlar verður.
Lærisveinar Rúnars eru í harðri fallbaráttu en unnu geysilega mikilvægan sigur á lærisveinum Arnórs Þórs Gunnarssonar í Bergischer HC í 1. deildinni í gær. Með sigrinum fór Wetzlar upp úr fallsæti og er einu stigi fyrir ofan Minden þegar fimm umferðir eru óleiknar.


