- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Þýski landsliðsmaðurinn til PSG

- Auglýsing -

Renars Uscins, örvhent skytta Hannover-Burgdorf og þýska landsliðsins, gengur til liðs við franska stórliðið PSG þegar samningur hans rennur út sumarið 2027. Þessu heldur þýski miðillinn Sport Bild fram fullum fetum.

Þar segir að Uscins, sem er 23 ára gamall, sé búinn að samþykkja þriggja ára samning hjá PSG og verði því samningsbundinn til sumarsins 2030.


Uscins hefur verið í stóru hlutverki hjá Alfreð Gíslasyni í þýska landsliðinu undanfarin ár og vakið mikinn áhuga fjölda félaga. Meðal annars höfðu VfL Gummersbach, SG Flensburg-Handewitt og MT Melsungen verið orðuð við hann.

Hvorki Hannover-Burgdorf né PSG hafa staðfest fyrirhuguð vistaskipti Uscins, sem er fæddur í Lettlandi, en samkvæmt Sport Bild verður af þeim.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -