- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Úrslitin ekki viðurkennd og spilað að nýju í Serbíu

- Auglýsing -

Annar úrslitaleikur RK Vojvodina og RK Partizan verður spilaður að nýju en að þessu sinni fyrir luktum dyrum. Stuðningsmenn Partizan skutu flugeldum inn á völlinn í Novi Sad í leiknum á miðvikudagskvöld.

Af þeim sökum ákváðu leikmenn Vojvodina að hætta leik þar sem þeim þótti öryggi sínu ógnað. Dómarar leiksins dæmdu þá liði Partizan sigur en forvígismenn serbnesku deildarinnar hafa nú ákveðið að ógilda þá ákvörðun.

Enn eru stuðningsmenn RK Partizan til vandræða – reyksprengjur hæfðu leikmann og dómara


„Úrslit annars leiksins í úrslitaeinvígi Vojvodina og Partizan verða ekki viðurkennd vegna truflana á framkvæmd hans, sem er hvorugu liðinu að kenna. Þess í stað verður leikurinn spilaður að nýju,“ hefur þýski miðillinn Sport Bild eftir Vladimir Knezic, stjórnaformanni serbnesku deildarinnar.

Vinna þarf tvo leiki til þess að verða serbneskur meistari og taldi Partizan sig því vera meistara í rúman sólarhring. Staðan er enn 1:0, Partizan í vil, og verður annar leikur úrslitaeinvígisins spilaður á ný án áhorfenda í Novi Sad á mánudagskvöld.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -