- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

26 mánaða bann stytt – má leika aftur 1. nóvember

Mynd/Eyjólfur Garðarsson
- Auglýsing -


Króatíski handknattleiksmaðurinn Ivan Horvat getur væntanlega leikið handknattleik á nýjan leik frá og með 1. nóvember eftir að áfrýjunardómstóll á vegum austurríska handknattleikssambandsins stytti 26 mánaða keppnisbann hans í eitt ár eða til loka apríl á næsta ári. Helmingur árs bannsins verður skilorðbundið. Þar af leiðandi getur Horvat leikið með Alpla Hard eða hverju öðru liði frá 1. nóvember.


Horvat, sem er leikmaður Alpla Hard sem Hannes Jón Jónsson þjálfar, nefbraut leikmann Bregenz í kappleik í austurrísku 1. deildinni í lok apríl. Um opið nefbrot var að ræða. Aganefnd austurríska handknattleikssambandsins tvínónaði ekki heldur greip til hæstu refsingar og Horvat var bannað að leika aftur fyrr en sumarið 2027. Þótt brotið væri gróft þá þótti refsingin vera alltof þung auk þess sem hún tekur yfir öll aðildarlönd Handknattleikssambands Evrópu. Forráðamenn Alpla Hard áfýjuðu refsingunni fyrir hönd Horvat og hafa haft erindi sem erfiði.

Sjá einnig:

Liðsmaður Hannesar dæmdur í tveggja ára bann fyrir nefbrot

Taka til varna vegna bannsins langa

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -