- Auglýsing -

Mikilvægt að ná því besta úr þeirri stöðu sem við erum í

Leikmenn 21 árs landsliðsins mætir Pólverjum á heimavelli á morgun á HM. Ljósmynd/IHF
- Auglýsing -


„Það er mikilvægt fyrir okkur að gera það besta úr þeirri stöðu sem við erum í, ná tveimur alvöru handboltaleikjum í lokin og ljúka mótinu á eins jákvæðan hátt og kostur er á,“ segir Einar Andri Einarsson annar þjálfara U21 árs landsliðs karla þegar handbolti.is sló á þráðinn til hans til Katowice í Póllandi.

Undirbúningur stóð þá yfir fyrir viðureignina við Pólverja í krossspili um sæti 17 til 20 á heimsmeistaramóti 21 árs landsliða í Póllandi. Viðureignin fer fram á morgun, fimmtudag, og hefst klukkan 12 að íslenskum tíma. Einar Andri segir allt kapp vera lagt á að ná 17. sæti mótsins, ofar verður ekki komist héðan af.

Góð æfing fyrir hádegið var að baki auk hádegismálsverðar. Framundan var hjá þjálfurunum að leggjast yfir pólska liðið með strákunum.

Foréttindi að vera á HM

„Það er forréttindi að vera á heimsmeistaramóti, ekki síst í ljósi þess að við höfum ekkert endilega verið fastagestir á HM21 árs landsliða í gegnum tíðina. Engin ástæða er til að vera hér og vorkenna sér yfir að spila alvöru handboltaleiki þótt við séum utan þeirra markmiða sem við settum okkur,“ segir Einar Andri sem er þjálfari 21 árs landsliðsins ásamt Halldóri Jóhanni Sigfússyni.

Möguleiki á forseta bikarnum

Íslenska liðið var einu stigi frá því að komast í milliriðlakeppni 16 efstu liðanna að þessu sinni. Tap fyrir Rúmeníu, sem er með á HM 21 árs landsliða í fyrsta sinn í áratug, varð íslenska liðinu að fótakefli þegar upp var staðið. Menn urðu að bíta í það súra epli að leika um sæti 17 til 32. Nú er möguleiki á að leika a.m.k. um 17. sætið og hreppa forsetabikarinn. Til þess þarf að vinna pólska liðið á morgun og síðan annað hvort Alsíringa eða Serba á föstudaginn.

Einar Andri segir að mikil samstaða og vilji sé fyrir hendi innan leikmannahópsins. Allir eru ákveðnir í að leggjast á árar og ná eins góðum árangri og kostur er á eins og sakir standa.

Tveir kostir voru í boði

„Eftir að ljóst varð að við næðum ekki inn í hóp sextán efstu á mótinu þá funduðum við með strákunum og sögðum að tveir kostir væru í boði, annað hvort að vera fúlir og svekktir eða að taka á stöðunni eins og hún væri og spila eins vel úr henni og mögulegt er. Strákarnir hafa brugðist mjög vel við og staðið sig frábærlega,“ sagði Einar Andri en íslenska liðið hefur unnið tvo mjög örugga sigra í keppni liðanna um sæti 17 til 32 og leikur úrslitaleik við Pólverja á morgun hvort liðið leikur um 17. og efsta sætið í neðri hluta heimsmeistaramótsins.

HMU21-’25: Dagskrá og úrslit síðustu leikja mótsins

Úr neðsta flokki í átta liða úrslit

„Markmið okkar fyrir mótið var að komast í hóp sextán efstu þótt ljóst væri að við værum í langerfiðasta riðlinum,“ sagði Einar Andri ennfremur og benti m.a. á lið sem fékk boðskort á mótið og var flokkað með þeim átta lökustu, Færeyingar, eru í átta liða úrslitum. Nokkuð sem ekkert af liðunm í neðsta styrkleikaflokki er í. Hin sjö skrapa botninn í sætum 25 til 32.

„Spilamennskan hefur verið góð hjá strákunum. Auðvitað situr í okkur leikurinn við Rúmeníu þar sem fjöldi góðra marktækifæra fór í súginn og varð okkur að falli þrátt fyrir vel leikinn leik að öðru leyti. Strákarnir hafa sýnt það í síðustu leikjum hvað í þeim býr og ætla að halda því áfram,“ sagði Einar Andri og ítrekaði að nú væri allt kapp lagt á að vinna Pólverja á morgun og leika við Serba eða Alsíringa um 17. sætið og forsetabikarinn á föstudag.

Viðureign Íslands og Póllands hefst klukkan 12 á morgun og verður að vanda fylgst með í textalýsingu og í streymi á handbolti.is.

Yngri landslið – fréttasíða.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -