- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Er gríðarlega spennt

- Auglýsing -

„Ég er gríðarlega spennt enda er ég að fara í fyrsta sinn á mót á stóra sviðinu,“ segir Alfa Brá Oddsdóttir einn fimm leikmanna kvennalandsliðsins sem er á leiðinni á sitt fyrsta stórmót. HM hefst í næstu viku.

Íslenska landsliðið hóf undirbúning í gær, mánudag, og æfir næstu daga áður en farið verður til Færeyja á föstudaginn og leikið við færeyska landsliðið á laugardaginn.

Stutt viðtal við Ölfu Brá er í myndskeiði hér fyrir neðan.

HM-hópur Íslands:

Markverðir:
Hafdís Renötudóttir, Valur (70/4).
Sara Sif Helgadóttir, Haukar (14/0).

Aðrir leikmenn:
Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, Fram (9/8).
Andrea Jacobsen, HSG Blomberg-Lippe (66/116).
Dana Björg Guðmundsdóttir, Volda (12/25).
Díana Dögg Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe (65/88).
Elín Klara Þorkelsdóttir, IK Sävehof (26/90).
Elín Rósa Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe (31/59).
Elísa Elíasdóttir, Valur (24/19).
Katrín Anna Ásmundsdóttir, Fram (12/25).
Katrín Tinna Jensdóttir, ÍR (27/17).
Lovísa Thompson, Valur (30/66).
Matthildur Lilja Jónsdóttir, ÍR, (1/0).
Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukar (3/2).
Sandra Erlingsdóttir, ÍBV (38/155).
Thea Imani Sturludóttir, Valur (91/197).
Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Valur (47/68).

Landsliðsþjálfari: Arnar Pétursson.
Aðstoðarþjálfari: Óskar Bjarni Óskarsson.
Markvarðaþjálfari: Hlynur Morthens.
Styrktarþjálfari: Hjörtur Hinriksson.
Sjúkraþjálfarar: Tinna Jökulsdóttir og Jóhanna Björk Gylfadóttir.
Liðsstjóri: Þorbjörg Jóhanna Gunnarsdóttir.

Leikir Íslands í riðlakeppni HM kvenna:
26. nóvember: Þýskaland - Ísland, kl. 17.
28. nóvember: Ísland - Serbía, kl. 19.30.
30. nóvember: Ísland - Úrúgvæ, kl. 14.30.
- Leikirnir fara fram í Porsche-Arena, Stuttgart.
- Leiktímar miðið við Ísland. Klukkan í Þýskalandi verður klukkustund á undan þegar þarna verður komið við sögu.
- Þrjú lið fara áfram í milliriðla.
- Neðsta liðið fer í keppnina um forsetabikarinn.
- Blaðamaður og ljósmyndari frá handbolti.is fylgir landsliðinu eftir á HM.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -