- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Guðmundur Bragi tryggði jafntefli gegn sínu fyrra liði

- Auglýsing -

Guðmundur Bragi Ástþórsson tryggði TMS Ringsted annað stigið í heimsókn til Bjerringbro/Silkeborg, 27:27, í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld í fyrsta leik liðanna á nýju ári. Guðmundur Bragi skoraði mark sitt úr hraðaupphlaupi á síðustu sekúndum gegn sínu gamla liði en hann var leikmaður Bjerringbro/Silkeborg tímabilið 2024/2025.


Samherji hans, Ísak Gústafsson, skoraði þrjú mörk fyrir Ringsted og gaf þrjár stoðsendingar. Guðmundur Bragi átti eina stoðsendingu.

TMS Ringsted er í 12. sæti af 14 liðum deildarinnar með 15 stig eftir 19 leiki. Sjö umferðir eru óleiknar í dönsku úrvalsdeildinni.

Staðan:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -