Slakur fyrri hálfleikur kom leikmönnum Bergischer HC í koll í gærkvöld þegar þeir heimsóttu Eisenach í Werner-Assmann Halle í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Leikmenn voru átta mörkum undir í hálfleik, 21:13, og tókst ekki að bíta úr nálinni í síðari hálfleik. Lokatölur, 33:31.
Bergischer HC, sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar í samvinnu við Markus Pütz situr í þriðja neðsta sæti þýsku 1. deildarinnar með 10 stig eftir 21 leik. Leipzig og Wetzlar eru fyrir neðan með sjö stig hvort. GWD Minden er í 15. sæti með 11 stig og Stuttgart er með 13 stig. Hvert stig í botnbaráttunni skiptir máli.
Eisenach siglir sem stendur lygnan sjó í 12. sæti.
Gian Attenhofer skoraði sjö sinnum fyrir Eisenach og Vincent Büchner í sex skipti.
Noah Beyer skoraði sjö mörk í átta skotum fyrir Bergischer HC og Nico Schöttle var næstur með sex mörk.



