- Auglýsing -
Janus Daði Smárason gengur til liðs við spænska stórliðið Barcelona í sumar. Barcelona tilkynnti um komu Janusar Daða í morgun en óstaðfestar fregnir um vistaskiptin fóru á flug í september en hafa ekki verið staðfestar fyrr en nú. Janus Daði hefur skrifað undir þriggja ára samning við Barcelona, fram á mitt árið 2029.
Janus Daði er að ljúka sínu öðru leikári með ungverska liðinu Pick Szeged. Hann verður fimmti Íslendingurinn til þess að leika með Barcelona. Þegar er Viktor Gísli Hallgrímsson hjá Barcelona en áður hafa Aron Pálmarsson, Guðjón Valur Sigurðsson og Viggó Sigurðsson leikið með Katalóníustórliðinu.
Var Janus Daði að skrifa undir samning í Barcelona í dag?
- Auglýsing -



