- Auglýsing -
Annar úrslitaleikur Hauka og Vals um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna fer fram í kvöld. Eftir nauman sigur Vals, 28:27, á Hlíðarenda á fimmtudaginn mætast liðin á Ásvöllum, heimavelli Hauka, að þessu sinni. Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson, dómarar, gefa upphafsmerki klukkan 18.
Leikur dagsins
Olísdeild kvenna, 2. úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn:
Ásvellir: Haukar – Valur (0:1), kl. 18.
Leikurinn verður sendur út á handboltapassanum.
- Auglýsing -