Ásgeir Örn Hallgrímsson og Andri Sigfússon þjálfarar 18 ára landsliðs karla í handknattleik hafa valið eftirtalda leikmenn til æfinga á höfuðborgarsvæðinu vikuna 16. – 22. mars.
Tveir af þremur markvörðum hópsins eru úr ÍBV, Morgan Goði Garner og Sigurmundur Gísli Unnarsson. Einnig vekur athygli að hinn 15 ára gamli Brynjar Narfi Arndal, FH, er í hópnum. Brynjar Narfi hefur vakið mikla athygli undanfarið ár. Hann verður 16 ára síðar á árinu.
Æfingarnar fram undan eru liður í undirbúningi 18 ára landsliðsins fyrir lokakeppni Evrópumótsins sem fram fer í Belgrad í Serbíu frá 29. júlí til 9. ágúst.
Ísland í riðli með Ungverjum, Sviss og Svartfellingum á EM 18 ára
Markverðir:
Anton Máni Francisco Heldersson, Val.
Morgan Goði Garner, ÍBV.
Sigurmundur Gísli Unnarsson, ÍBV.
Aðrir leikmenn:
Alex Unnar Hallgrímsson, Fram.
Anton Frans Sigurðsson, ÍBV.
Aron Leo Guðmundsson, Selfossi.
Bergur Hrafn Ásgeirsson, ÍR.
Bjarki Snorrason, Val.
Brynjar Narfi Arndal, FH.
Freyr Aronsson, Haukum.
Gunnar Róbertsson, Val.
Helgi Marinó Kristófersson, Haukum.
Kári Steinn Guðmundsson, Val.
Kristófer Tómas Gíslason, Fram.
Logi Finnsson, Val.
Matthías Dagur Þorsteinsson, Stjörnunni.
Ómar Darri Sigurgeirsson, FH.
Patrekur Smári Arnarsson, ÍR.
Ragnar Hilmarsson, Selfossi.
Sigurður Atli Ragnarsson, Val.
Örn Kolur Kjartansson, ÍR.



