- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

AEK á sér engar málsbætur – HC Alkaloid er Evrópbikarmeistari

Leikmenn HC Alkaloid þakka áhorfendum fyrir komuna þegar ljóst var að ekkert yrði úr úrslitaleiknum. Þeim hefur verið dæmdur sigur í leiknum. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -


Dómstóll Handknattleikssambands Evrópu, EHF, hefur dæmt HC Alkaloid sigur, 10:0, í síðari úrslitaleik liðsins við AEK Aþenu í úrslitum Evrópubikarkeppni karla í handknattleik sem fram átti að fara í síðasta mánuði. HC Alkaloid er þar með Evrópubikarmeistari í karlaflokki og fylgir í kjölfar Vals sem vann keppnina í karlaflokki fyrir ári.


Leikmenn AEK neituðu að taka þátt í síðari leiknum m.a. vegna þess að þeir töldu að stuðningsmenn hafi verið hindraðir í að koma til Skopje á síðari úrslitaleikinn. Þeir hafi heldur ekki fengið umsamdan fjölda aðgöngumiða.
Dómstóll EHF segir að AEK eigi sér engar málsbætur í þeirri ákvörðun að hunsa leikinn.

HC Alkaloid vann leikinn sem fram fór í Aþenu, 29:25, og er dæmdur sigur, 10:0, í síðari leiknum.

Fleiri atriði til skoðunar

Ákvörðun dómstólsins nær einungis til keppnistengdra þátta málsins. Önnur tengd mál varðandi leikinn sem ekki fór fram s.s. eru enn til rannsóknar hjá EHF. Snýr það m.a. að miðasölu og hugsanlegum skaðabótum vegna þess að leikurinn féll niður.

Aftur neitar AEK að mæta til leiks – ekkert varð af úrslitaleik í Skopje

Lærisveinar Lazarov unnu í Aþenu – áhorfendamet

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -