Afturelding tryggði sér oddaleik í rimmunni við Hauka í átta liða úrslitum Olísdeildar karla í handknattleik. Aftureldingarmenn unnu Hauka, 26:22, í Myntkauphöllinni að Varmá í kvöld. Oddaleikur liðanna verður á Ásvöllum á fimmtudaginn klukkan 18.
Sterkur varnarleikur og frábær frammistaða Einars Baldvins Baldvinssonar lagði grunn að sigri Aftureldingar. Baráttugleðin var rík hjá Mosfellingum að þessu sinni og sýndi liðið vafalaust sinn besta leik síðan fyrir áramót. Haukar áttu í erfiðleikum frá byrjun og sýndu afar kaflaskipta frammistöðu, ekki síst í sóknarleiknum þar sem þeim tókst aldrei að keyra upp hraðann að nokkru marki.
Framan af var leikurinn jafn í Myntkauphöllinni. Eftir um 13 mínútur kom frábær kafli hjá Mosfellingum. Þeir skoruðu sex mörk í röð og breyttu stöðunni úr 6:6 í 12:6. Einar Baldvin Baldvinsson varði allt hvað af tók auk þess sem varnarleikur Aftureldingar var öflugur.
Haukar komust trauðla í þau tækifæri sem þeir vildu, þeir fengu fáar hraðar sóknir og virtust vera í talsverðu basli sem aldrei tókst að vinda ofan til lengri tíma.
Sex mörkum yfir gáfu Aftureldingarmenn eftir. Þeir styttu sóknir sínar og Haukar gengu á lagið og tókst að minnka muninn í tvö mörk yfir hálfleik, 14:12. Síðasta markið var ódýrt vítakast sem Mosfellingar gáfu leikmönnum Hauka. Árni Bragi Eyjólfsson varð fyrir boltanum þegar Haukar hugðust snúa vörn í sókn á allra síðustu sekúndum.
Haukar jöfnuðu metin snemma í síðari hálfleik og var staðan jöfn allt fram í miðjan hálfleikinn er hamur rann á Einar Baldvin á nýjan leik. Hann og varnarleikur Aftureldingar reyndist Haukum erfiður og Afturelding náði ítrekað tveggja marka forskoti. Grétar Ari Guðjónsson markvörður Hauka kann líka sitt hvað fyrir sér. Hann hélt Haukum inni í leiknum og kom ítrekað í veg fyrir að Afturelding næði þriggja marka forskoti fyrr en undir blálokin.
Einar Baldvin hélt áfram að verja og þegar hann varði vítakast tveimur mínútum fyrir leikslok í stöðunni 24:21, var hagur Aftureldingar orðinn góður. Ihor innsiglaði sigurinn 40 sekúndum fyrir leikslok er hann kom Aftureldingu aftur þremur mörkum yfir.
Mörk Aftureldingar: Ihor Kopyshynskyi 5/2, Harri Halldórsson 5, Árni Bragi Eyjólfsson 3, Ævar Smári Gunnarsson 3, Ágúst Ingi Óskarsson 3, Kristján Ottó Hjálmsson 3, Þorvaldur Tryggvason 2, Stefán Magni Hjartarson 1, Oscar Sven Leithoff Lykke 1.
Varin skot: Einar Baldvin Baldvinsson 19/2, 46,3%.
Mörk Hauka: Ólafur Ægir Ólafsson 4, Freyr Aronsson 4/1, Hergeir Grímsson 3/2, Jón Ómar Gíslason 3, Skarphéðinn Ívar Einarsson 2, Birkir Snær Steinsson 2, Össur Haraldsson 2, Sigurður Snær Sigurjónsson 1, Þráinn Orri Jónsson 1.
Varin skot: Grétar Ari Guðjónsson 10/1, 41,7% – Aron Rafn Eðvarðsson 5, 29,4%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.



