- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Áhorfandi lést á Evrópuleik í Flensburg

- Auglýsing -

Áhorfandi á viðureign Flensburg og Montpellier í Evrópudeild karla í handknattleik lést meðan leikurinn fór fram á heimavelli Flensburg. Framkvæmdastjóri Flensburg staðfestir andlátið í tilkynningu félagsins í kvöld. Ekki kemur fram hvort hinn látni hafi verið stuðningsmaður Flensborgar-liðsins eða Montpellier.


Flensburg segir að neyðartilvik vegna veikinda hafi komið upp hjá áhorfendum á leiknum í kvöld og að fyrsta hjálp sem var veitt hafi verið ekki borið árangur.

„Hugur okkar er hjá aðstandendum og vinum hins látna á þessum erfiðu tímum. Handboltinn og allt sem viðkemur íþróttum er hjóm eitt á þessari stundu,“ er haft eftir framkvæmdastjóranum Holger Glandorf í tilkynningu Flensburg-Handewitt.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -